olgerdin

Bjór

Ölgerðin Egill Skallagrímsson er elsta ölgerð landsins, en hún var sett á laggirnar 1913 af Tómasi Tómassyni. Upphaflega var ætlun hans að brugga öl, en bjórbannið sem sett var nokkrum árum síðar setti strik í reikninginn. Engu að síður bruggaði Ölgerðin bjór á bannárunum, en sá bjór var seldur hermönnum, fyrst breskum en svo bandarískum. 

Bjór eða kornöl á sér langa sögu. Fundist hafa leifar af slíkum drykk í vel forvörðum mögum egypskra faraóa og heimildir eru til um drykkinn frá tímum Babýlón. Þegar menning Grikkja og Rómverja reis hvað hæst, hvarf bjórinn af borðum helstu menningarþjóðanna, enda átti vín frekar upp á pallborðið þá. Hins vegar voru það Germanir, Keltar og aðrar barbarískar þjóðir sem héldu fast í þann sið að drekka öl og má segja, að þeir hafi lyft bjór á þann virðingarsess sem hann situr í nú.

Allt frá landnámi og að minnsta kosti fram á 17. öld, var kornöl aðalveisludrykkur manna hérlendis. Ölið var bruggað úr malti, sem er spírað bygg, og kallað mungát. Orðið bjór var hins vegar notað um innflutt öl af þessu tagi framan af.
Til ölgerðar þurfti einungis malt, vatn og ger sem venjulega var tekið úr fyrri lögunum. Eins verður að teljast líklegt að trjábörkur eða einiber hafi verið sett í öl hér á landi, eins og talið er að Norðmenn hafi snemma lært að gera. 
Ölgerðin bruggar í dag allmargar tegundir bjórs, sem margar hverjar hafa unnið til verðlauna í erlendum bjórkeppnum, þeirra á meðal hinni virtu Monde Selection. Bruggmeistari Ölgerðarinnar heitir Guðmundur Mar Magnússon en hann hefur náð miklum árangri í fagi sínu og er t.a.m. eftirsóttur dómari í bjórkeppnum erlendis.

Egils Pilsner  (4,5%): Eitt elsta vörumerki Ölgerðarinnar og er einfaldlega hagstæðustu kaupin sem hægt er að gera í bjór  í dag.
Egils Gull (4,5%): Egils Gull hefur hlotið fjölda alþjóðlegra verðlauna fyrir bragð og gæði. Inniheldur íslenskt bygg. 
Egils Lite (4,4%): Sá bjór sem hefur hlotið flest verðlaun. Færri hitaeiningar og því minna samviskubit. 
Egils Premium (5,7%): Ölgerðin gefur sér lengri tíma til að brugga Premium, gef þú þér lengri tíma til að njóta hans. 
Egils Sterkur (6,2%): Sterkur lagerbjór með meðalfyllingu og miðlungs beiskju. Bjór sem kemur virkilega á óvart. 
Egils Maltbjór (5,6%): Dökkur og ferskur bjór með sætuvotti, malti og lakkrískeim. Algjört sælgæti. 
Polar beer (4,7%): Polar beer var fyrst bruggaður fyrir hersetuliðið í seinni heimsstyrjöldinni. Nú, næstum hálfri öld síðar, er hann fáanlegur aftur. Ferskur, bragðgóður og eins og nafnið gefur til kynna, skemmtilega kaldur.  
Tuborg Grön (4,5%): Fjörið hefst með Tuborg.
Tuborg Gold (5,5%): Lúxusbjórinn frá Tuborg. Ferskur, gullinn lagerbjór með lítilli beiskju.

Um Ölgerðina